Hvað er POTS?
Hvað er POTS?
POTS er heilkenni sem er tengist truflun í starfsemi ósjálfráða taugakerfinins (e. dysautonomia). Einkennandi fyrir POTS eru réttstöðubundin einkenni, það er einkenni sem koma fram eða versna þegar einstaklingur er í uppréttri stöðu, til dæmis þegar staðið er. POTS getur einnig fylgt fjöldi annara einkenna sem eru ekki tengd líkamsstöðu.
POTS stendur fyrir Postural Orthostatic Tachycardia Syndrome.
Postural vísar til stöðu líkamans
Orthostatic vísar til uppréttrar stöðu
Tachycardia þýðir hraðtaktur (hraður hjartsláttur)
Syndrome þýðir heilkenni eða safn einkenna sem koma fram saman
Á íslensku hefur POTS meðal annars verið kallað Stöðubundið hraðtaktsheilkenni.
Einkenni
Einkenni POTS geta verið fjölbreytt og mismunandi milli einstaklinga. Algeng einkenni eru meðal annars:
- svimi
- hraður hjartsláttur eða hjartsláttarónot
- heilaþoka
- langvarandi þreyta
- meltingartruflanir
- álags- og áreitisóþol
- yfirlið eða yfirliðstilfinning
- svefntruflanir
- höfuðverkur
- ógleði
- einbeitingarerfiðleikar
- mæði
- sjóntruflanir
- dofi eða óþægindi í útlimum
Sjá nánar um einkenni hér
Greining
Greining á POTS fer fram hjá lækni en greining byggir á samspili einkenna, hjartsláttabreytinga og útilokunar annarra mögulegra orsaka. Við mat er skoðað hvernig hjartsláttur og blóðþrýstingur breytast þegar einstaklingur fer úr liggjandi í upprétta stöðu.
Hjá fullorðnum er miðað við að hjartsláttur aukist um að minnsta kosti 30 slög á mínútu innan við 10 mínútna frá því að staðið er upp.
Hjá einstaklingum 19 ára og yngri er miðað við aukningu um að minnsta kosti 40 slög á mínútu.
Til greiningar þurfa einkenni einnig að hafa verið til staðar í að minnsta kosti þrjá mánuði. Jafnframt þarf að meta hvort aðrar skýringar geti legið að baki einkennum.
Sjá nánar um greiningu hér
Hvað veldur POTS?
Ekki er þekkt ein ákveðin orsök fyrir POTS. Líklegt er að mismunandi lífeðlisfræðilegir þættir geti átt þátt í heilkenninu en orsök eða kveikjan sé ekki sú sama hjá öllum. Hjá sumum virðist POTS koma fram í kjölfar ákveðins atviks, t.d. Við upphaf veirusýkinga, áfalla, höfuðhöggs og meðgöngu.
POTS getur einnig komið fram samhliða öðrum sjúkdómum en meðal fylgisjúkdóma eru mígreni, ME, IBS og Ehler-Danlos heilkenni.
Meðferð
Meðferð við POTS miðar fyrst og fremst að því að draga úr einkennum og auka virkni í daglegu lífi. Meðferð við POTS er einstaklingsbundin og getur falist í bæði meðferð án lyfja og lyfjameðferð.
Helstu meðferðarúrræði:
- Aukin vökvainntaka
- Aukin saltneysla
- Þrýstingsfatnaður
- Regluleg og stigvaxandi hreyfing
- Sjúkraþjálfun
- Lyfjameðferð
Sjá nánar um lyfjameðferð hér
Athugið: Við erum enn að vinna að þessu efni. Markmiðið er að hafa upplýsingarnar eins réttar og gagnlegar og mögulegt er, en á meðan vinnan stendur yfir geta komið fyrir villur eða ónákvæmni. Efnið verður uppfært og leiðrétt eftir því sem nýjar og betri upplýsingar liggja fyrir.