20.1.2026

Greining POTS

Samantekt

Hér má finna yfirlit yfir hvernig POTS er greint, helstu greiningarviðmið og þær mælingar og rannsóknir sem notaðar eru í greiningarferlinu.

Greining á POTS byggist á sjúkrasögu, einkennum við upprétta stöðu og mælingum á hjartslætti og blóðþrýstingi. Einnig er mikilvægt að útiloka aðrar mögulegar skýringar á einkennunum. Í greiningarferlinu getur því verið þörf á frekari rannsóknum, svo sem blóðprufum, hjartalínuriti, Holter-mælingu eða hjartaómun, eftir því hvað á við hverju sinni. 

Greiningarviðmið

Til að greining POTS komi til greina þurfa nokkur atriði að vera til staðar:

  • Viðvarandi hækkun hjartsláttar um að minnsta kosti 30 slög á mínútu hjá fullorðnum innan 10 mínútna frá því að farið er í upprétta stöðu. Hjá ungmennum er miðað við hækkun um að minnsta kosti 40 slög á mínútu.
  • Ekki má vera um marktækt réttstöðuþrýstingsfall að ræða, þ.e. lækkun á slagbilsþrýstingi um 20 mmHg eða meira eða hlébilsþrýstingi um 10 mmHg eða meira.
  • Einkenni réttstöðuóþols þurfa að koma fram eða versna í uppréttri stöðu og batna gjarnan þegar lagst er niður. Dæmi eru svimi, hjartsláttarónot, skjálfti, máttleysi, sjóntruflanir og þreyta.
  • Einkennin þurfa að hafa verið viðvarandi í að minnsta kosti þrjá mánuði.
  • Aðrar mögulegar orsakir hraðsláttar og einkennanna þurfa að hafa verið útilokaðar.


Á Íslandi er POTS greint með standandi mælingu eða borðveltiprófi.

Standandi mæling

Standandi mæling er einföld aðferð til að meta breytingar á hjartslætti og blóðþrýstingi þegar farið er úr liggjandi stöðu í standandi stöðu. Hjartsláttur og blóðþrýstingur eru fyrst mæld í hvíld og síðan endurtekið eftir að einstaklingur stendur upp.

Niðurstöðurnar eru síðan metnar með hliðsjón af greiningarviðmiðum POTS og þeim einkennum sem koma fram við upprétta stöðu.

Borðveltipróf

Borðveltipróf (tilt table test) er rannsókn þar sem einstaklingur liggur á sérstöku borði og er síðan hallað upp í nær upprétta stöðu. Á meðan er fylgst með hjartslætti, blóðþrýstingi og þeim einkennum sem koma fram. Prófið gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að fylgjast náið með viðbrögðum líkamans við stöðubreytingunni. Rannsóknin er framkvæmd á Landspítala. 

Ekki þurfa allir sem eru metnir með tilliti til POTS að fara í borðveltipróf. Standandi mæling getur í mörgum tilfellum verið nægileg til greiningar, en borðveltipróf getur verið notað þegar þörf er á frekara mati eða staðfestingu. 

Heimildir

Hjálmarsson, Þ. (2024). Stöðubundið hraðtaktsheilkenni á Íslandi og áhrif meðferðarúrræða [Meistararitgerð í lífeindafræði, Háskóli Íslands]. Ritgerðin fjallar meðal annars um greiningarferli POTS á Íslandi, standandi mælingu og borðveltipróf. POTSmeistaraverkefnis HÍ

Raj, S. R., Fedorowski, A., & Sheldon, R. S. (2022). Diagnosis and management of postural orthostatic tachycardia syndrome. CMAJ, 194(10), E378–E385. https://doi.org/10.1503/cmaj.211373

Sheldon, R. S., Grubb, B. P., Olshansky, B., et al. (2015). 2015 Heart Rhythm Society Expert Consensus Statement on the diagnosis and treatment of postural tachycardia syndrome, inappropriate sinus tachycardia, and vasovagal syncope. Heart Rhythm, 12(6), e41–e63. https://doi.org/10.1016/j.hrthm.2015.03.029

Steinar Guðmundsson, hjartalæknir, óbirt fræðsluefni, 2026.

Vernino, S., Bourne, K. M., Stiles, L. E., et al. (2021). Postural orthostatic tachycardia syndrome (POTS): State of the science and clinical care from a 2019 National Institutes of Health Expert Consensus Meeting – Part 1. Autonomic Neuroscience, 235, 102828. https://doi.org/10.1016/j.autneu.2021.102828

Kirbiš, M., Grad, A., Meglič, B., & Bajrović, F. F. (2013). Comparison of active standing test, head-up tilt test and 24-h ambulatory heart rate and blood pressure monitoring in diagnosing postural tachycardia. Functional Neurology, 28(1), 39–45.


Athugið: Við erum enn að vinna að þessu efni. Markmiðið er að hafa upplýsingarnar eins réttar og gagnlegar og mögulegt er, en á meðan vinnan stendur yfir geta komið fyrir villur eða ónákvæmni. Efnið verður uppfært og leiðrétt eftir því sem nýjar og betri upplýsingar liggja fyrir.