6.10.2026
Lyfjameðferð við POTS
Samantekt
Hér má finna yfirlit yfir lyfjameðferð við POTS, helstu lyfjaflokka sem notaðir eru, hvernig þeir verka og hvaða lyf geta haft áhrif á eða aukið POTS-einkenni. Einnig er fjallað um mikilvægi einstaklingsmiðaðrar og heildrænnar meðferðar.
Lyfjameðferð við POTS er einstaklingsbundin. Ekkert eitt lyf hentar öllum og lyfjaval ræðst meðal annars af því hvaða einkenni eru mest áberandi, hjartslætti, blóðþrýstingi og öðrum heilsufarsþáttum.
Engin lyf hafa verið sérstaklega samþykkt til meðferðar við POTS. Þau lyf sem notuð eru miða því fyrst og fremst að því að draga úr ákveðnum einkennum eða hafa áhrif á þá lífeðlisfræðilegu þætti sem geta stuðlað að þeim, svo sem hröðum hjartslætti, lágum blóðþrýstingi, blóðsöfnun í útlimum eða litlu blóðrúmmáli. Rannsóknir á lyfjameðferð við POTS eru enn takmarkaðar og meðferð þarf því að sníða að hverjum einstaklingi.
Lyfjameðferð er aðeins einn hluti meðferðar við POTS. Önnur úrræði, svo sem salt- og vökvainntaka, þrýstingsfatnaður, aðlögun daglegs lífs og einstaklingsmiðuð hreyfing eða endurhæfing þegar hún á við, geta einnig gegnt mikilvægu hlutverki. Markmið meðferðar er að draga úr einkennum, bæta færni og auka lífsgæði.
Lyf sem hægja á hjartslætti
Beta-blokkar
Beta-blokkar draga úr áhrifum adrenalíns og noradrenalíns á hjartað og geta þannig lækkað hjartslátt. Þeir geta komið til greina þegar hraður hjartsláttur og hjartsláttarónot eru áberandi.
Própranólól er meðal þeirra beta-blokka sem mest hafa verið rannsakaðir við POTS. Önnur lyf úr sama flokki eru einnig notuð í klínísku starfi, en rannsóknargrunnurinn fyrir þau sérstaklega við POTS er minni. Beta-blokkar geta meðal annars valdið of lágum hjartslætti eða blóðþrýstingi og hjá sumum aukið þreytu.
Ivabradín
Ivabradín(proccoralan) verkar á sínushnút hjartans og hægir þannig á hjartslætti. Það hefur almennt minni bein áhrif á blóðþrýsting en beta-blokkar og getur því komið til greina hjá sumum sem þola illa blóðþrýstingslækkun.
Rannsóknir benda til þess að ivabradín geti lækkað hjartslátt og bætt einkenni hjá hluta fólks með POTS, en rannsóknirnar eru enn tiltölulega fáar og litlar. Meðal þekktra aukaverkana eru hægur hjartsláttur og tímabundnar sjóntruflanir.
Í íslenskri rannsókn á 122 einstaklingum sem greindust með POTS á árunum 2020–2023 var ivabradín algengasta lyfjameðferðin eftir greiningu og höfðu 71% þátttakenda fengið það sem hluta af fyrstu meðferð.
Lyf sem styðja við blóðþrýsting og blóðrás
Midodrín
Midodrín veldur samdrætti í æðum og getur þannig bætt endurkomu blóðs til hjartans og hækkað blóðþrýsting. Það getur sérstaklega komið til greina þegar lágur blóðþrýstingur eða mikil blóðsöfnun í neðri hluta líkamans er hluti af einkennamyndinni.
Þar sem lyfið getur hækkað blóðþrýsting þarf að velja meðferðina með hliðsjón af blóðþrýstingi einstaklingsins.
Flúdrókortisón (Florinef)
Flúdrókortisón stuðlar að því að nýrun haldi eftir natríum og vatni og getur þannig aukið vökvamagn í blóðrásinni. Það getur komið til greina þegar lítið blóðrúmmál er talið eiga þátt í einkennunum.
Lyfið getur meðal annars valdið bjúg, hækkun blóðþrýstings og lækkun kalíums í blóði og því getur þurft viðeigandi eftirlit meðan á meðferð stendur.
Flúdrókortisón hefur lengi verið notað við POTS, en rannsóknargögn um virkni þess sérstaklega við POTS eru takmörkuð.
Lyf sem hafa áhrif á ósjálfráða taugakerfið
Pyridostigmine (Mestinon)
Pyridostigmine hamlar niðurbroti taugaboðefnisins asetýlkólíns og eykur þannig kólínvirk taugaboð. Hjá sumum getur það dregið úr hjartsláttaraukningu við upprétta stöðu.
Lyfið hefur einnig áhrif á meltingarveginn og getur meðal annars valdið kviðverkjum, óþægindum frá meltingarvegi eða niðurgangi.
Clonidine
Clonidine dregur úr virkni sympatíska taugakerfisins. Það getur komið til greina hjá völdum einstaklingum þar sem mikil sympatísk virkni eða adrenavirk einkenni eru áberandi.
Lyfið hentar þó ekki öllum og getur meðal annars valdið lækkun blóðþrýstings, þreytu og öðrum aukaverkunum. Rannsóknargögn um notkun clonidine sérstaklega við POTS eru takmörkuð og lyfjavalið þarf því að vera einstaklingsbundið.
Lyf sem geta haft áhrif á POTS-einkenni
Sum lyf sem eru notuð við öðrum sjúkdómum geta hjá fólki með POTS aukið hraðslátt, lækkað blóðþrýsting, minnkað blóðrúmmál eða aukið réttstöðuóþol.
Í nýrri yfirlitsgrein í JAMA eru meðal annars nefnd:
- Atomoxetín, sem getur aukið hjartslátt og aukið réttstöðuóþol.
- SNRI-lyf, svo sem duloxetín, venlafaxín og desvenlafaxín, sem geta hjá sumum aukið réttstöðuhraðslátt og hjartsláttarónot.
- Örvandi lyf, svo sem amfetamínlyf og metýlfenídat, sem geta aukið hjartslátt og hjartsláttarónot.
- Þvagræsilyf, þar á meðal spirónólaktón, sem geta minnkað blóðrúmmál og þannig aukið réttstöðuóþol.
- Alfa-blokkar, svo sem prazosín og tamsulosín, sem geta lækkað blóðþrýsting og aukið réttstöðueinkenni.
- Getnaðarvarnir sem innihalda drospirenón, sem geta hjá sumum aukið réttstöðueinkenni.
- Æðavíkkandi lyf, svo sem amlodipín og hydralazín, sem geta aukið réttstöðuóþol.
- Nítröt, sem víkka æðar og geta þannig aukið réttstöðuóþol.
Þetta þýðir ekki að þessi lyf séu almennt frábending hjá fólki með POTS. Þau geta verið nauðsynleg vegna annarra sjúkdóma og áhrif þeirra eru mismunandi milli einstaklinga. Ef einkenni breytast eftir að lyf er hafið eða skammti breytt er rétt að ræða það við lækni. Ekki ætti að hætta lyfjum eða breyta skömmtum án samráðs við heilbrigðisstarfsfólk.
Heildræn og einstaklingsmiðuð meðferð
POTS er fjölbreytt heilkenni og það sem virkar vel fyrir einn einstakling virkar ekki endilega fyrir annan. Oft þarf að prófa mismunandi úrræði og stundum eru fleiri en eitt lyf notuð samhliða.
Lyfjameðferð kemur best að gagni sem hluti af heildrænni meðferð þar sem einnig er tekið tillit til meðal annars vökva- og saltbúskapar, blóðsöfnunar, svefns, daglegrar virkni, samhliða sjúkdóma og einstaklingsmiðaðrar endurhæfingar þegar hún á við.
Markmiðið er ekki eingöngu að lækka hjartslátt heldur að draga úr einkennum, auka færni og bæta lífsgæði.
Heimildir
Chung, T. H., & Raj, S. R. (2026). Postural Orthostatic Tachycardia Syndrome (POTS): A Review. JAMA, 336(13), 1149–1164. https://doi.org/10.1001/jama.2026.14809 JAMA Network
Hjálmarsson, Þ. (2024). Stöðubundið hraðtaktsheilkenni á Íslandi og áhrif meðferðarúrræða [Meistararitgerð í lífeindafræði, Háskóli Íslands].
Raj, S. R., Fedorowski, A., & Sheldon, R. S. (2022). Diagnosis and management of postural orthostatic tachycardia syndrome. CMAJ, 194(10), E378–E385. https://doi.org/10.1503/cmaj.211373 PubMed
Vernino, S., Bourne, K. M., Stiles, L. E., et al. (2021). Postural orthostatic tachycardia syndrome (POTS): State of the science and clinical care from a 2019 National Institutes of Health Expert Consensus Meeting – Part 1. Autonomic Neuroscience, 235, 102828. https://doi.org/10.1016/j.autneu.2021.102828 PubMed
Steinar Guðmundsson, hjartalæknir, óbirt fræðsluefni, 2026.
Athugið: Við erum enn að vinna að þessu efni. Markmiðið er að hafa upplýsingarnar eins réttar og gagnlegar og mögulegt er, en á meðan vinnan stendur yfir geta komið fyrir villur eða ónákvæmni. Efnið verður uppfært og leiðrétt eftir því sem nýjar og betri upplýsingar liggja fyrir.