Um samtökin
Markmið og starfsemi
Samtök um POTS á Íslandi voru stofnuð í apríl 2025. Meginmarkmið samtakanna er að veita fólki með POTS og aðstandendum þess stuðning og fræðslu. Auk þess að stuðla að aukinni þekkingu á POTS meðal almennings, heilbrigðisstarfsfólks og annarra fagaðila.
Stjórn
Hanna Birna Valdimarsdóttir, formaður
Hugrún Vignisdóttir, varaformaður
Charlotta Ýr Davíðsdóttir, gjaldkeri
Díana Ösp Davíðsdóttir, ritari
Kristín Ásgeirsdóttir, meðstjórnandi
Lög Samtakanna
Lög samtaka um POTS á Íslandi sem samþykkt voru á stofnfundi samtakanna þann 9. apríl 2025 í sal Sjálfsbjörgu á höfuðborgarsvæðinu.
- gr.
Nafn félagsins er samtök um POTS á Íslandi (á ensku The Icelandic Association of POTS). POTS stendur fyrir Postural Orthostatic Tachycardia Syndrome. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæðið tekur til alls landsins.
- gr.
Helsta markmið samtakanna er að veita fólki með POTS og aðstandendum þess stuðning og fræðslu. Auk þess að stuðla að aukinni þekkingu á POTS meðal almennings, heilbrigðisstarfsfólks og annarra fagaðila. Samtök um POTS á Íslandi eru félagasamtök sem rekin eru með árgjaldi félagsfólks, styrkjum og frjálsum framlögum. Þau eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Stjórn er sameiginlega ábyrg fyrir öllum fjármálum samtakanna. Öll útgjöld samtakanna skulu vera samþykkt af stjórn þeirra.
- gr.
Samtökin hyggjast styðja við tilgang sinn með því að:
- Styðja við bætt aðgengi að greiningu og meðferðarúrræðum til einstaklinga með POTS, óháð búsetu.
- Standa fyrir fræðsluviðburðum og öðrum viðburðum og skapa þannig vettvang fyrir samræður um POTS.
- Stuðla að auknu samstarfi við innlend og erlend samtök sem vinna að sambærilegum málefnum.
- gr.
Félagsaðild er öllum opin sem styðja tilgang samtakanna og/eða hafa áhuga á POTS.
Stjórn samtakanna getur vikið félaga úr samtökunum vinni viðkomandi gegn tilgangi og markmiðum samtakanna. Er þá átt við niðrandi eða meiðandi framkoma í yrtu eða rituðu máli sem og hverslags ofbeldi eða áreitni.
- gr.
Starfstímabil samtakanna er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsfólk getur verið þátttakendur á aðalfundi.
- gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 15. maí ár hvert. Skal hann auglýstur á heimasíðu samtakanna og boðaður félagsfólki í tölvupósti með minnst tveggja vikna fyrirvara. Stjórn samtakanna um POTS á Íslandi ber ábyrgð á framkvæmd aðalfundar. Stjórnin getur ákveðið að fundur sé staðfundur, rafrænn eða bæði staðfundur og rafrænn. Dagsetning, tímasetning og staðsetning fundarins ákvarðast af starfandi stjórn ár hvert. Formanni er skylt að boða til fundar þegar þrír eða fleiri stjórnarmeðlimir krefjast þess.
Tillögur að lagabreytingum skulu fylgja aðalfundarboði.
Aðalfundur er lögmætur og ályktunarhæfur sé löglega til hans boðað. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa eingöngu þau sem staðsett eru á fundinum, hafa greitt félagsgjald fyrir viðkomandi almanaksár sem og það félagsfólk sem undanþegin eru félagsgjöldum samkvæmt lögum þessum. Einfaldur meirihluti ræður í atkvæðagreiðslu nema annað sé tekið fram í lögum.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra, fundarritara og atkvæðateljara.
- Skýrsla stjórnar lögð fram.
- Reikningar lagðir fram til samþykktar.
- Lagabreytingar (eftir því sem við á).
- Ákvörðun um félagsgjöld.
- Stjórnarkjör.
- Önnur mál.
- gr.
Stjórn samtaka um POTS á Íslandi skipa fimm fulltrúar og einn varafulltrúi: formaður, varaformaður, gjaldkeri, tveir meðstjórnendur og varafulltrúi. Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs sér ritara. Kjörtímabil er tvö ár, frá aðalfundi til aðalfundar. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda.
Kjör stjórnar fer þannig fram að á hverju ári skal kjósa hluta stjórnar, þannig að annað hvert ár er kosinn formaður, tveir meðstjórnendur og varafulltrúi en varaformaður, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur hitt árið. Hætti fulltrúi í stjórn á miðju kjörtímabili skal sá sem er kjörinn í staðinn ljúka kjörtímabili þess sem hætti.
Framboð til embætta í stjórn skulu berast félaginu eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og eru þau kynnt félagsfólki með tölvupósti og á heimasíðu félagsins. Einungis félagar skuldlausir við samtökin geta gefið kost á sér. Meirihluti stjórnar skal vera fólk með POTS. Berist ekki framboð í öll sæti stjórnar fyrir aðalfund skal kalla eftir framboðum á aðalfundinum sjálfum og kosið ef þess þarf.
- gr.
Félagsgjöld skulu innheimt árlega og eru 3000 kr. Reikningar skulu sendir félagsfólki eigi síðar en 31. janúar ár hvert. Sé árgjald ekki greitt innan tveggja mánaða frá gjalddaga, fellur félagsaðild sjálfkrafa niður. Fullgildur félagi telst sá sem hefur greitt félagsgjöld yfirstandandi árs eða næstliðins árs.
Stjórn ákvarðar breytingar á félagsgjöldum og leggur fyrir aðalfund til samþykktar.
Stjórnarfólk og heiðursfélagar greiða ekki félagsgjöld. Stjórn félagsins getur útnefnt sérhvern þann heiðursfélaga, sem hún telur hafa leyst af hendi mikilvæg störf í þágu samtaka um POTS á Íslandi. Til útnefningar heiðursfélaga þarf samhljóða atkvæði alls stjórnarfólks.
- gr.
Hagnaði af starfsemi samtaka um POTS á Íslandi verður varið í rekstur samtakanna. Félagsfólk eða stjórn mun að engu leyti njóta fjárhagslegs ávinnings af starfsemi samtakanna.
- gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til þeirra góðgerðarmála sem ákveðin verða á slitafundi.
- gr.
Félagsfólk eru ávallt bundin trúnaði á öllum þeim fundum og viðburðum sem samtökin standa fyrir.