25/10/2026
Ný heimasíða Samtaka um POTS á Íslandi komin í loftið!

Það gleður okkur að tilkynna að ný heimasíða Samtaka um POTS á Íslandi er loksins komin í loftið!
Síðan er enn í vinnslu og mun halda áfram að þróast. Við munum bæta inn nýju efni reglulega, meðal annars fræðslu, fréttum og gagnlegum upplýsingum um POTS og starfsemi samtakanna.
Á síðunni er nú hægt að skrá sig í samtökin og gerast áskrifandi að póstlista til að fylgjast með fréttum og því sem er á döfinni.
Verkefnið var styrkt af heilbrigðisráðuneytinu og heimasíðan var unnin í samstarfi við 260 Software. Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn og gott samstarf við gerð síðunnar.
Við vonum að síðan muni nýtast fólki með POTS, aðstandendum og öðrum sem vilja kynna sér sjúkdóminn og starfsemi samtakanna.
Ef þið hafið ábendingar eða athugasemdir varðandi síðuna megið þið endilega hafa samband við okkur á potsisland@gmail.com.
Við hlökkum til að byggja síðuna áfram upp og deila með ykkur meira efni á næstu vikum og mánuðum!