16/02/2026
Þrýstingsfatnaður
Summary
Þrýstingsfatnaður getur dregið úr einkennum POTS með því að bæta blóðflæði til hjartans, mikilvægt er að velja gerð og þrýstingsstyrk sem hentar hverjum og einum.
Þrýstingsfatnaður við POTS
Þrýstingsfatnaður er ein af þeim meðferðarleiðum sem geta hjálpað til við að draga úr einkennum POTS. Hann er notaður til að minnka uppsöfnun blóðs í neðri hluta líkamans og auðvelda blóðflæði aftur til hjartans. Rannsóknir benda til þess að notkun þrýstingsfatnaðar geti dregið úr hjartsláttarhækkun og öðrum einkennum sem koma fram þegar staðið er upprétt.
Hvernig virkar þrýstingsfatnaður?
Þegar við stöndum upprétt veldur þyngdaraflið því að blóð leitar niður í fætur og kvið. Við eðlilegar aðstæður bregst líkaminn við með því að draga saman æðar til að viðhalda nægilegu blóðflæði til hjarta og heila.
Hjá einstaklingum með POTS getur þessi aðlögun verið skert. Þá safnast blóð fyrir í neðri hluta líkamans (e. blood pooling) og minna blóð skilað sér aftur til hjartans. Þegar að þetta gerist bregst hjartað meðal annars við með því að slá hraðar. Þetta getur tengst einkennum eins og svima, hjartsláttarónotum, yfirliðstilfinningu, þreytu og einbeitingarerfiðleikum.
Þrýstingsfatnaður veitir þrýsting utan frá á fætur og/eða kvið. Þrýstingurinn hjálpar til við að draga úr blóðsöfnun á þessum svæðum og stuðlar þannig að auknu blóðflæði aftur til hjarta og heila.
Hvaða þrýstingsfatnaður hentar við POTS?
Þrýstingsfatnaður er til í ýmsum gerðum, meðal annars sem sokkar (háir og lágir), sokkabuxur, stuttbuxur og kviðbelti.
Rannsóknir benda til þess að þrýstingur sem nær yfir bæði kvið og fætur skili meiri árangri en þrýstingur á fótleggi eingöngu. Því er oft mælt með mittisháum þrýstingsokkabuxum sem ná upp yfir kvið.
Þrýstingur yfir kviðinn virðist skipta sérstaklega miklu máli. Ef mittisháar þrýstingssokkabuxur henta illa getur því verið gagnlegt að prófa fatnað sem veitir þrýsting á kviðinn, svo sem kviðbelti eða þrýstingsstuttbuxur.
Hversu mikill þrýstingur er æskilegur?
Þrýstingsstyrkur er mældur í millimetrum kvikasilfurs (mmHg). Við POTS er oft mælt með þrýstingi á bilinu 20–30 mmHg eða 30–40 mmHg.
Ekki er þó víst að sami þrýstingsstyrkur henti öllum. Mikilvægt er að velja fatnað sem veitir nægilegan þrýsting en er jafnframt þægilegur og hægt er að nota í daglegu lífi.
Hvað er gott að hafa í huga við notkun?
Það getur tekið tíma að venjast þrýstingsfatnaði og sumum reynist erfitt að nota hann. Erfitt getur verið að klæðast þröngum fatnaði, sérstaklega fyrir einstaklinga sem glíma við mikla þreytu. Einnig getur hann valdið óþægindum vegna hita, þrýstings eða þess að hann rúllar niður eða þrengir að líkamanum.
Nokkur atriði geta auðveldað notkunina:
- Veldu rétta stærð. Fatnaðurinn þarf að passa vel til að veita viðeigandi þrýsting og draga úr óþægindum.
- Prófaðu mismunandi gerðir. Ef mittisháar þrýstingssokkabuxurbuxur henta illa getur kviðþrýstingur, háir þrýstingssokkar, íþróttafatnaður með stuðningi eða aðhaldsfatnaður verið betri valkostur.
- Það getur verið auðveldara að fara í þrýstingssokkabuxur að morgni, áður en farið er fram úr rúminu. Einnig eru til hjálpartæki til að auvelda klæðnað.
- Fylgstu með óþægindum. Ef fatnaðurinn veldur ertingu, roða eða öðrum óþægindum er mikilvægt að athuga hvort stærð og gerð henti.
Þrýstingsfatnaður sem ætlaður er til íþróttaiðkunar eða aðhaldsfatnaður getur verið raunhæfari valkostur fyrir suma. Slíkur fatnaður veitir þó oft minni þrýsting en læknisfræðilegur þrýstingsfatnaður en getur verið auðveldari að fara í og þolist lengur. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þrýstingsfatnaður svo sem aðhaldsfatnaður og íþóttafatnaður geti bætt einkenni POTS.
Hentar þrýstingsfatnaður öllum?
Þrýstingsfatnaður getur verið gagnlegur hluti af meðferð við POTS, en áhrifin og hvernig þrýstingsfatnaður þolist er mjög einstaklingsbundið. Sumir finna fyrir verulegum ávinningi en aðrir minni áhrifum eða það miklum óþægindum sem gera notkun þrýstingsfatnaðar óraunhæfa.
Þrýstingsfatnaður hentar heldur ekki öllum. Sérstaklega þarf að gæta varúðar ef blóðflæði til fóta er skert eða húð er mjög viðkvæm. Því er mikilvægt að ræða við heilbrigðisstarfsfólk um hvaða tegund og þrýstingsstyrkur hentar best.
Athugið: Við erum enn að vinna að þessu efni. Markmiðið er að hafa upplýsingarnar eins réttar og gagnlegar og mögulegt er, en á meðan vinnan stendur yfir geta komið fyrir villur eða ónákvæmni. Efnið verður uppfært og leiðrétt eftir því sem nýjar og betri upplýsingar liggja fyrir.