17/10/2026

Sturta og persónulegt hreinlæti

Summary

Hér má finna fræðslu um hvers vegna sturtuferðir og persónulegt hreinlæti geta aukið einkenni POTS og hvaða lífeðlisfræðilegu þættir liggja þar að baki. Einnig er fjallað um hagnýt ráð, hjálpartæki og einfaldar aðlaganir sem geta auðveldað daglega umhirðu og dregið úr álagi á líkamann.


Af hverju getur verið erfitt að fara í sturtu?

Fyrir einstaklinga með POTS getur það að fara í sturtu verið töluvert líkamlegt álag, sérstaklega þegar vatnið er heitt eða staðið er lengi. Við slíkar aðstæður geta einkenni á borð við hraðan hjartslátt, svima, máttleysi, ógleði og mikla þreytu aukist.

Í uppréttri stöðu veldur þyngdaraflið því að blóð hefur tilhneigingu til að safnast fyrir í neðri hluta líkamans. Hiti frá vatni getur jafnframt valdið útvíkkun æða, sem getur aukið blóðsöfnun og dregið úr blóðflæði til hjartans. Hjá einstaklingum með POTS getur þetta aukið álag á blóðrásarkerfið og gert líkamanum erfiðara fyrir að viðhalda stöðugri blóðrás og nægilegu blóðflæði til heilans.

Samspil hita og langvarandi uppréttrar stöðu getur því stuðlað að auknum einkennum POTS við sturtuferðir.


Hvað getur hjálpað í sturtunni?

Nokkrar einfaldar breytingar geta gert sturtuferðir auðveldari:

  • Notaðu volgt vatn. Mjög heitt vatn getur aukið einkenni POTS.
  • Prófaðu sturtustól. Með því að sitja í sturtunni minnkar álagið sem fylgir því að standa lengi.
  • Hafðu baðherbergið vel loftræst. Opin hurð eða gluggi og góð loftræsting geta hjálpað til við að draga úr hita og raka.
  • Hafðu sturtuna stutta. Styttri sturtur geta dregið úr líkum á að einkenni versni.
  • Skipuleggðu hvíld eftir sturtu. Það getur hjálpað að setjast eða leggjast niður eftir þörfum.
  • Farðu í sturtu þegar þér líður best. Sumum líður verr á morgnana og kjósa því að fara í sturtu seinna um daginn.

Það sem hentar einum þarf ekki endilega að henta öðrum. Mikilvægt er að finna fyrirkomulag sem tekur mið af eigin einkennum.


Hárþvottur og önnur persónuleg umhirða

Hárþvottur getur verið sérstaklega erfiður þar sem hann krefst þess oft að við höfum handleggina uppi í lengri tíma. Það getur aukið álagið, sérstaklega þegar við stöndum í heitri sturtu.

Hægt er að prófa að:

  • Þvo hárið sitjandi.
  • Skipta hárþvotti og líkamsþvotti á mismunandi daga.
  • Nota sturtuhettu þegar ekki þarf að þvo hárið.
  • Nota þurrsjampó á milli hárþvotta.
  • Sitja við að blása, greiða eða móta hárið.
  • Sitja við vaskinn þegar tennurnar eru burstaðar eða húðumhirða fer fram.
  • Beðið nákominn aðila um aðstoð við hárþvott.

Litlar breytingar geta hjálpað til við að spara orku og draga úr einkennum við daglegar athafnir.


Hvað ef ég hef ekki orku til að fara í sturtu?

Sumir með POTS eiga daga þar sem stutt sturta er of mikil áreynsla og leiðir til versnunar.

Á slíkum dögum getur verið gagnlegt að einfalda persónulega umhirðu. Til dæmis er hægt að þvo sér sitjandi við vask, nota þvottapoka eða blautþurrkur og skipta verkefnum niður yfir daginn.

Það þarf ekki að gera allt í einu. Stundum er betra að þvo hárið einn daginn og fara í stutta sturtu annan dag.

Að aðlaga daglegar athafnir að eigin getu er mikilvægur hluti af því að lifa með langvinnum veikindum.


Öryggi í sturtu

Ef þú finnur fyrir miklum svima eða yfirliðstilfinningu í sturtu skaltu stöðva sturtuna og setjast niður á öruggan hátt til að forðast fall. Hálkuvarnir og traust handföng geta aukið öryggi.

Ef þú hefur áður fallið í yfirlið getur verið skynsamlegt að láta einhvern vita þegar þú ferð í sturtu og ræða við heilbrigðisstarfsfólk um frekari öryggisráðstafanir.


Athugið: Við erum enn að vinna að þessu efni. Markmiðið er að hafa upplýsingarnar eins réttar og gagnlegar og mögulegt er, en á meðan vinnan stendur yfir geta komið fyrir villur eða ónákvæmni. Efnið verður uppfært og leiðrétt eftir því sem nýjar og betri upplýsingar liggja fyrir.


Heimildir

  1. PoTS UK. (2024). Important Lifestyle Changes: Personal Hygiene. Síðast yfirfarið 21. nóvember 2024.
    https://www.potsuk.org/managingpots/personal-hygiene/
  2. Dysautonomia International. (e.d.). Lifestyle Adaptations for POTS.
    https://www.dysautonomiainternational.org/page.php?ID=44
  3. Johns Hopkins Medicine. (e.d.). Postural Orthostatic Tachycardia Syndrome (POTS).
    https://www.hopkinsmedicine.org/health/conditions-and-diseases/postural-orthostatic-tachycardia-syndrome-pots
  4. Raj, S. R., Fedorowski, A., & Sheldon, R. S. (2022). Diagnosis and management of postural orthostatic tachycardia syndrome. Canadian Medical Association Journal (CMAJ), 194(10), E378–E385.
    https://doi.org/10.1503/cmaj.211373