20.10.2026

S.P.Í. skilar inn umsögn við drögum að frumvarpi um breytingu á lögum um framhaldsskóla

Logo

Samtök um POTS á Íslandi hafa skilað inn umsögn við drög að frumvarpi um breytingu á lögum um framhaldsskóla.

Í 2. gr. frumvarpsdraganna er lagt til að framhaldsskólanám skuli að meginreglu skipulagt og stundað sem staðnám. Í umsögn okkar leggjum við áherslu á að samhliða slíkri meginreglu þurfi að tryggja með skýrum hætti að nemendur sem vegna langvinnra veikinda eða fötlunar geta ekki alltaf tekið þátt í hefðbundnu staðnámi hafi áfram raunhæfan aðgang að fjarnámi, blönduðu námi og annarri námsaðlögun.

Heilsufar nemenda á ekki að verða til þess að þeir missi af tækifærum til náms sem hægt væri að tryggja með viðeigandi sveigjanleika og námsaðlögun, svo sem fjarnámi.

Lesa má drögin og umsögnina hér:

https://island.is/samradsgatt/mal/4342?fbclid=IwY2xjawVGz71leHRuA2FlbQIxMQBwZG9mBXNydGMGYXBwX2lkEDIyMjAzOTE3ODgyMDA4OTIAAR47WcmMRJxnYJ6Nl_dvu5-n_LJcHlkQGRSECzsDsXJHF4CvQOcdyK3rAJrqhw_aem_gif6tXhUl2pNhok8hM3yhQ