25.10.2026
Vökvi og salt
Samantekt
Vökvi og salt sem meðferð við POTS. Aukin vökva- og saltinntaka er ein af grunnmeðferðum við POTS og getur hjálpað til við að draga úr einkennum.
Af hverju hjálpar vatn og salt?
Þegar við stöndum upp færist hluti blóðsins niður í fætur og kvið vegna þyngdaraflsins. Við eðlilegar aðstæður bregst ósjálfráða taugakerfið við með því að þrengja æðarnar og auka hjartslátt lítillega. Þannig heldur líkaminn uppi nægilegu blóðflæði til hjarta og heila þrátt fyrir breytinguna á líkamsstöðu.
Hjá einstaklingum með POTS getur þessi stjórnun blóðrásarinnar verið trufluð. Blóð getur þá safnast í auknum mæli í neðri hluta líkamans þegar staðið er upp og minna blóð skilar sér til hjartans. Margir einstaklingar með POTS eru einnig með minna blóðrúmmál en venjulega, sem getur aukið vandann. Til að bregðast við þessu fer hjartað að slá hraðar en eðlilegt getur talist. Því geta fylgt einkenni eins og svimi, hjartsláttarónot, þreyta og mæði.
Með því að drekka vel af vökva og auka saltinntöku getur blóðrúmmálið aukist. Salt hjálpar líkamanum að halda í vökvann, þannig að meira blóð skilar sér til hjartans þegar staðið er upp. Þetta getur dregið úr hjartsláttaraukningu og einkennum við upprétta stöðu.
Aukin vökva- og saltinntaka læknar ekki POTS, en getur verið mikilvægur hluti af einkennameðferð ásamt öðrum meðferðarúrræðum.
Hversu mikið á að drekka?
Algengar ráðleggingar fyrir fullorðna með POTS eru að drekka 2–3 lítra af vökva á dag, en þörfin getur verið mismunandi eftir einstaklingum.
Gott er að drekka reglulega yfir daginn og hafa vatnsbrúsa við höndina. Stærð brúsans skiptir ekki máli, bara að þú vitir hversu stór hann er og getir þannig fylgst með vökvainntekt á einfaldan máta.
Hversu mikið salt?
Við POTS er oft mælt með að auka daglega saltinntöku. Í almennum leiðbeiningum er miðað við 8–12 grömm af salti á dag, en ráðleggingar geta þó verið mismunandi.
Hægt er að auka saltinntöku með því að:
- Salta mat og drykkjarvatn
- Velja saltrík matvæli
- Nota salt- og steinefnablöndur í drykki eða íþróttadrykki sem innihalda salt
- Taka inn salt í töfluformi
Til viðmiðunar samsvara 10 grömm af salti um tveimur teskeiðum. Mikilvægt er þó að greina á milli heildarsaltneyslu og salts sem bætt er við, þar sem maturinn inniheldur oft þegar talsvert salt.
Mikilvægt að hafa í huga
Aukin vökva- og saltinntaka hentar ekki öllum. Mikilvægt er að ráðfæra sig við lækni áður en saltinntaka er aukin verulega, sérstaklega ef saga er um háan blóðþrýsting, hjartabilun eða nýrnasjúkdóma.
Efnið á þessari síðu er almenn fræðsla og kemur ekki í stað ráðgjafar heilbrigðisstarfsfólks. Ræddu alltaf við lækni áður en þú breytir meðferð, salt- eða vökvainntöku.
Athugið: Við erum enn að vinna að þessu efni. Markmiðið er að hafa upplýsingarnar eins réttar og gagnlegar og mögulegt er, en á meðan vinnan stendur yfir geta komið fyrir villur eða ónákvæmni. Efnið verður uppfært og leiðrétt eftir því sem nýjar og betri upplýsingar liggja fyrir.
Heimildir
Chung, T. H., og Raj, S. R. (2026). Postural Orthostatic Tachycardia Syndrome (POTS): A Review. JAMA, 336(13), 1149–1164.
https://doi.org/10.1001/jama.2026.14809
Garland, E. M., Gamboa, A., Nwazue, V. C., Celedonio, J. E., Paranjape, S. Y., Black, B. K., Okamoto, L. E., Shibao, C. A., Biaggioni, I., Roberson, D., Diedrich, A., Dupont, W. D. og Raj, S. R. (2021). Effect of high dietary sodium intake in patients with postural tachycardia syndrome. Journal of the American College of Cardiology, 77(17), 2174-2184. https://doi.org/10.1016/j.jacc.2021.03.005
Raj, S. R., Guzman, J. C., Harvey, P., Richer, L., Schondorf, R., Seifer, C., Thibodeau-Jarry, N. og Sheldon, R. S. (2020). Canadian cardiovascular society position statement on postural orthostatic tachycardia syndrome (POTS) and related disorders of chronic orthostatic intolerance. Canadian Journal of Cardiology, 36(3), 357-372. https://doi.org/10.1016/j.cjca.2019.12.024