22.10.2026

Máltíðir og POTS

Samantekt

Stutt samantekt um tengsl máltíða og einkenna POTS

Í æðum kviðarholsins er að jafnaði um 25–30% af heildarblóðmagni líkamans. Þessar æðar gegna mikilvægu hlutverki í blóðrásinni þar sem þær geta víkkað og dregist saman eftir þörfum. Þannig hjálpa þær líkamanum að halda blóðflæði stöðugu.

Þegar við borðum þarf meltingarkerfið meira blóð til að melta fæðuna og vinna úr næringarefnunum. Þess vegna eykst blóðflæði til meltingarfæranna eftir máltíð. Þetta er eðlilegt ferli og hjá flestum tekst líkamanum að aðlagast breytingunni án þess að hún valdi miklum óþægindum.

Hjá einstaklingum með POTS getur þessi breyting hins vegar valdið auknum einkennum. Meira blóð safnast í æðum kviðarholsins og minna blóð skilað sér til hjartans, sérstaklega þegar staðið er upp. Hjartað þarf þá að slá hraðar til að viðhalda blóðflæði til hjarta og heila. Það getur meðal annars valdið auknum hjartsláttarónotum, svima, þreytu eða yfirliðstilfinningu eftir máltíðir.

Rannsóknir benda til þess að stórar máltíðir, sérstaklega þær sem innihalda mikið af kolvetnum geti aukið POTS-einkenni hjá sumum, það á þó ekki við um alla.

Sumum hjálpar því  að borða minni máltíðir oftar yfir daginn og forða mjög stórar eða kolvetnaríkar máltíðir



Efnið á þessari síðu er almenn fræðsla og kemur ekki í stað ráðgjafar heilbrigðisstarfsfólks.

Athugið: Við erum enn að vinna að þessu efni. Markmiðið er að hafa upplýsingarnar eins réttar og gagnlegar og mögulegt er, en á meðan vinnan stendur yfir geta komið fyrir villur eða ónákvæmni. Efnið verður uppfært og leiðrétt eftir því sem nýjar og betri upplýsingar liggja fyrir.


Heimildir

Bourne, K. M., Stiles, L. E., Raj, S. R., & Shibao, C. A. (2022). Do meals affect heart rate and symptoms in postural orthostatic tachycardia syndrome? Clinical Autonomic Research, 32(1), 65–67. https://doi.org/10.1007/s10286-021-00835-0

Harper, D., & Chandler, B. (2016). Splanchnic circulation. BJA Education, 16(2), 66–71. https://doi.org/10.1093/bjaceaccp/mkv017

Tani, H., Singer, W., McPhee, B. R., Opfer-Gehrking, T. L., Haruma, K., Kajiyama, G., & Low, P. A. (2000). Splanchnic-mesenteric capacitance bed in the postural tachycardia syndrome (POTS). Autonomic Neuroscience: Basic and Clinical, 86(1–2), 107–113. https://doi.org/10.1016/S1566-0702(00)00205-8